Mánudagur 20/3
Í tímanum byrjuðum aðeins á spjalli. Við töluðum um ferðalagið í síðustu viku og ritgerðina sem við erum byjruð á, t.d. hvernig hún á að vera og hvað Gyða metar í ritgerðinni en hún metar ekki allt þar sem við erum að gera þessa ritgerð í íslensku náttúrufræði og tölvutíma svo að það eru þrír kennarar að hjálpa okkur með ritgerðina.
Miðvikudagur 23/3
Í tímanum var stöðvavinna og ég var með Valdimari í hóp. Við skoðuðum berg og áttum að reyna finna hvers konar berg þetta væri, svo fórum við í Ipadinn að skoða fréttir um langjökul.
Stöð 1
Hvað er grunnvatn?
-Það er vatn sem fyllir allar glufur í jörðu fyrir neðan grunnvatnsflöt.
Hvað er snælína?
-Mörk milli snjófyrningasvæða og auðra svæða nefnast snælína
Hvað er vatnavið?
-Svæði þar sem vatn rennur af og til vatnsfalls er nefnt vatnasvið
Hvað er kaldavermsl?
-Uppsprettur sem fylgja meðalhitanum (4° ) eru kallaðir kaldavermsl
Fimmtudagur 24/5
Þessi tími var nýttur í ritgerða vinnu niðri í tölvu stofu. Við eigum síðan að skila ritgerðinni í síðasta lagi 7. Apríl en þar sem ég er að fara til útlanda 5. APríl þá þarf ég að skila aðeins fyrr en hinir.
Fréttir
Hérna er svo fréttirnar sem ég og Valdimar skoðuðum: Ísland í dag, íshellirinn vekur athygli
Höfðu 80 risaeðluegg á brott með sér